..allt sem þú lest er lýgi
18.01.2006 14:58:11 / fannar

Já, þá er komið að því..

Það er allt að gerast í blogg bransanum í dag, því að ein vinsælasta síða á landinu hefur fengið til liðs við sig 3 nýja bloggara/slúðrara af guðs náð. Nú er ég að tala um enga aðra síðu en bgudlaugsson, sem brátt verður að fyrirtæki..eða eitthvað svoleiðis.
Þessir nýju og heppnu meðlimir bguð ehf. eru þessir;

Fannar "fanfab" Ólafsson - blog.central.is/fanfab
Brynjar "svadalegafint" Magnússon - blog.central.is/svadalegafint
Ólafur "Straw" Berry - betherepulse.blogspot.com


Þess vegna er ég hér til að segja ykkur, að fanfabulous sjálfur mun ekki stunda bloggið á fanfab síðunni vegna stöðuhækkunnar yfir í betri síðu. Ég segi bara takk fyrir mig og allar lesningar og þann skít.

Þau sem ekki hafa farið inná bgudlaugsson, örugglega ekkert nema öryrkjar og útlendingar, gjörið þið svo vel;



» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 20:01:56 / fannar

I'm standing here..

Jáááh, fékk ansi góða hugmynd.....

  1. Hver ert þú?
  2. Erum við vinir?
  3. Hvenær hittiru mig fyrst og hvernig?
  4. Ertu hrifin af mér?
  5. Langar þig að kyssa mig?
  6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju það.
  7. Lýstu mér í einu orði.
  8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
  9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
  10. Hvað minnir þig á mig?
  11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað yrði það?
  12. Hversu vel þekkiru mig?
  13. Hefur þig einhverntímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
  14. Hvenær sástu mig síðast?
Hah, nú megið þið spreyta ykkur.. vinsamlegast.. plz? :(

~ fanfab

» 16 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 04:06:25 / fannar

Eyó..

Sæl veriði..

Kvittaðu hérna og:

  1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig..
  2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig..
  3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig..
  4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína um þig..
  5. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á..
  6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig..
Spreytið ykkur, eða.. látið mig spreyta mig á ykkur. Annað;

Gleðilegt nýtt ár, og takk fyrir það gamla eyh ;)


Gangið hægt um gleðinnar dyr..

~ fanfab

» 53 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 16:01:39 / fannar

Jul.





Gleðileg Jól

~ fanfab

 

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 00:33:57 / fannar

*Öllþauljótulýsingarorðsemégkann* ...

 Vá hvað það er í alvöru best að fá tölvuna sína aftur eftir tveggja vikna fjarveru.

Ég ætlaði samt ekki að tala um það, ég man að í síðustu færslu þá talaði ég um að við værum alveg að fara að fá einkunnirnar okkar. Ég sagði ykkur hvað ég myndi fá í VERSTA lagi og svo hvað ég myndi fá í langbesta lagi. Ég var farinn að fá góða tilfinningu fyrir þessum einkunnum, og allt stefndi í góð jól hér heima við.

Svo var komið að þessum blessaða fimmtudegi, ég rölti niður í FS um 12 leytið. Spjallaði við nokkra félaga sem ég sá að væru komnir með einkunnablöðin sín. Þvílík gleði og hamingja, hjá langflestum þarna, allir að monta sig af góðum einkunnum og allir með bros á vör.

Woah, þá hugsaði ég.. Afhverju ætti ég að vera eitthvað öðruvísi en hinir og fá ömurlegar einkunnir?

Jæja, ég er víst sá allra öðruvísasti, en þeir sem fengu góðar einkunnir. Þar sem ég gjörsamlega skeit upp á bak. Þessi önn fór bara til spillis, en sem betur fer voru nokkrir vel valdir vinir mínir sem fengu víst mjög svipaðann skít. Ég ætla ekki að nefna neinar tölur, en ég get sagt ykkur að ég fékk það sem ég myndi fá í VERSTA lagi.....ooog ég labbaði með öfugt bros út. Þið vitið, svona eins og þessi kall ":(" ef ekki svona ":cry:".


Ekkert svona á mínu einkunnarblaði..

Shit ok, ef ég lýt á björtu hliðarnar....sem eru jú einhverjar. Þá náði ég dönskunni, og þá er ég víst eitthvað sem kallast útskrifaður úr dönsku og jeg har aldrig at skrive danskt ord igen. Eða þúst, gegn mínum vilja. Önnur gífurleg björt hlið, er að ég náði íslensku, Huldu eflaust til mikillar undrunnar, þar sem hún var búin að staðfesta að ég myndi ekki ná, but I proved her wrong.


Að öðru, þá var ég í bíó á laugardaginn, á myndinni King Kong. Helvíti góð mynd verð ég að segja, eins og allir vita er hún leikstýrð af sama leikstjóra og í LOTR trílógíunni, Peter Jackson. Jack Black, grínistinn stóð sig vel líka í þessu hlutverki, passaði honum þótt hann hafi ekki verið að leika einhvern gaur með aulahúmor.


Það var reyndar eitt sem pirraði mig, það var hvað helvítis konan varð eitthvað..ástfangin? af þessum apa. Maður sá það að King var voða skotinn í henni, en hvað var hún eitthvað að faðma hann og gráta því hann öskraði á eftir henni? Einum of. Ég beið bara eftir því að þau myndu fara stunda kynmök, örugglega ekki svo blíð heldur.


Kóngurinn sjálfur..

Annars hafði ég gaman af þessari mynd, og apanum, væri til í að eiga einn sjálfur, bara aðeins minni.


Svo vil ég óska henni Anítu Árnadóttur til hamingju með daginn. Hún átti afmæli, í gær, eða fyrir rúmum hálftíma og er víst orðinn sautján ára stúlkukind. Ég nenni ekki að vera með sama aulahúmor og flestir og segja; "Vóóóah, passið ykkur nú er hún skiluru að keyra, allir inn!!! heheheh".
En farðu samt varlega Níta mín, og njóttu þess að vera sautján á jólunum. ;)


Aníta, er chica hægra megin..

Ég á örugglega eftir að skrifa eitthvað meira von bráðar, en allavega, Gleðileg Jól ;)

~ fanfab

» 100 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 20:16:37 / fannar

Hóhóhó..

Vá hvað það eru að koma jól og ég finn ekki fyrir neinu, ég er enn einhvernveginn smá stressaður og finnst eins og ég eigi að vera að gera eitthvað.

Kannski af því að móðir mín vakti mig grimmilega í morgun, sagði mér að taka til í herberginu, láta aaallar skólabækurnar síðan 30 ára systir mín var í grunnskóla í einhvern kassa. Setja upp eitthvað gay jólaljósatré fyrir utan sem virkaði ekki einu sinni eftir hálftíma basl við uppsetningu á því. Oh, so this is christmas. Það er ekki einu sinni snjór og stillt veður úti. Þetta verður líka fyrsta jólafríið mitt sem ég mun vinna, ég hef aldrei gert það áður, enda hafa öll mín jólafrí verið frábær, en nú stefnir í allt annað.

Loksins er maður líka búinn í prófum, ég fór í 6 svoleiðis djöfla. Prófavikan leið mjög hratt fannst mér, ekki eins leiðinleg og hún getur verið. Ég er pottþétt fallinn í einu. Ég er búinn að hugsa útí þetta, ef ég fell í einu en fæ prýðilegar einkunnir í hinu, á ég eftir að eiga góð jól. Í LANGversta lagi get ég fallið í 3, og þá verða engin jól hjá FannariFab(btw fólk sem kallar mig FannarFab, hættið því).

En núna lifi ég allavega frábæru lífi, alveg þangað til á fimmtudaginn, því þá er prófsýnidagur, víj. Um kvöldið verður svo svaðalegt jóla/80's ball í Shitcity Grindavík, þar sem allir geta svo drukkið sorgum sínum, eða fagnað frábærum einkunnum.

Ég veit ekki hvort það er satt, en það eiga margir afmæli víst í dag. Sá það á nfs.is, og ég vissi ekkert um það? Sjit, þetta eru engir aðrir en gulldrengirnir Viktor Guðna, Aron Reynis og Kiddi Björns.. Ég vona að það sé ekki einhver villa á síðunni, því það voru óvenju mörg afmælisbörn í dag, en jæja, til hamingju með daginn allir saman. ;)

~ fanfab


» 121 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 12:51:04 / fannar

Eyó..

Heyb, þarna...já.

Sorry, en mig langaði bara að skrifa hérna, ekki um neitt spes en það er allavega eitthvað til að tala um, sjit. Í fyrsta lagi var síðasti skóladagurinn í dag, thank god. En nú byrja prófin, ekki thank god. Veit ekki um neitt leiðinlegra en prófin. En ef allt á að ganga mest vel, er ég að fara ná öllu, hafaða skidegodt í júlefríen og meikaða sem söngvari, neplat. Djöfull hlakka ég  samt til að komast í jólafríið, besti tíminn.

Í dag er líka merkur dagur vegna þess að góðvinur minn hann Ívar Marteinn á 17 ára afmæli í dag, og náði loksins bóklega bílprófinu, og þá er aðeins létti parturinn eftir (nema fyrir Bjarka).
Til hamingju kall.;););););););)

Ívar er sæti strákurinn í miðjunni.

So, uuh..Já alveg rétt, ég var líka að heyra um einhverja geheðveika tónleika sem eiga víst að vera í Janúar, einhverjir styrktartónleikar en það verða sko ekki lítil bönd þar, ég heyrði um; Sigurrós, Hjálma, Björk og Damien Rice svo eitthvað sé nefnt. Det er meget godt man, ég þangað.

Það er allt að gerast á b.c.is/pretzel er maður að heyra/sjá, magnaðir titlar að fjúka þarna, meðal annars besti bloggarinn, fallegasti kvenmaðurinn og nú er í gangi fallegasti kallmaðurinn, /bgudlaugsson hreppti blogsíðan, Karitas hreppti kvenmanninn, og nú er komið að öllum til að kjósa fallegasta kjeppann. Kíkið þangað og kjósið.

Ég held ég sé búinn að gera það áður en ég verð að minna ykkur þá á það, að skoða Arthúr myndasögurnar, mér finnst þetta mest fyndið. Ha-ha-ha.

www.fjandinn.com/arthur

Annars vil ég bara segja, gangi ykkur vel í prófunum, brjótið fót.

~ fanfab

» 145 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 16:02:01 / fannar

Takk...

Hey vitiði hvað?

Ég sá Sigurrós á tónleikum síðasta sunnudag og ég er enn að deyja úr ánægju. Ef þetta voru ekki fallegustu tónleikar sem ég mun nokkurn tíma sjá þá er ég lítill. Ég nenni ekki að vera einn af þessum steríótýpum; "HEYVÓ etta voru Fkn GEGGJAAIR tónleika marh!" en ég þori samt að segja að þetta var, yndislegt.

Þið sem létuð ekki sjá ykkur getið lesið grein eftir blaðamann í morgunblaðinu núna í dag, hann segir einmitt frekar vel frá þessum tónleikum, og gaf þeim 5 stjörnur, af 5. Frábært, eyh?

Það var svo margt við þetta sem greip athygli og ég veit ekki hvað og hvað, t.d. upphitunarhljómsveitin, Amina. Mér fannst hún helvíti góð, eða já allavega sæmileg, en það var eitt lag þarna sem ég fékk alveg nóg, þegar fólk er byrjað að nota öll hljóð í heiminum, klessa því saman og úr því verður lag. En mér fannst samt geðveikt svalt þegar hún spilaði á sögina með fiðluboganum.



Englaröddin hans Jónsa fékk mig næstum til að æla tárum, þvílík geðveiki. Þegar tjaldið kom yfir sviðið, djöfull var það svalt, risa skuggar af þeim sem allir sáu, líka litla fólkið. Mér fannst það svo flott. Ég var orðinn svolítið þreyttur á því að standa þarna í nokkra klukkutíma, ég viðurkenni það. En ég fékk ekki nóg, þeir virtust ætla að enda á laginu Heysátan, sem er einmitt uppáhaldslagið mitt á Takk. En það gékk ekki hjá þeim þar sem öll laugardagshöllin klappaði af sér hendurnar, þeir komu aftur, svo fóru þeir, og komu aftur.

Ég hef ALDREI séð eins mikla geðveiki og í síðasta laginu, þegar allt var að verða vitlaust, hljóðið, myndirnar á tjaldinu, skuggarnir, skiptist allt á milljón, sjit ég get ekki lýst þessu.
Endaði með að Orri, trommarinn sparkaði frá sér trommunum og hljóp yfir það, og þeir yfirgáfu sviðið.


Ef ég mætti, þá myndi ég gefa þeim 6 stjörnur af 5. Ég get sjálfsagt röflað endalaust um hvað þetta var gott&gaman en þið mynduð eflaust hætta að lesa hjá mér, ikke godt. Ég verð samt að segja ykkur frá einu skemmtilegu sem gerðist. Ég stóð niðri í stæði og fyrir framan mig var einhver kjéppi sem var svo sannarlega í góðu stuði þetta kvöld. Góð skýring á því er, að í rólega partinum í laginu Viðrar vel til loftárása, þá var maðurinn slammandi. Ég er ekki að grínast, hann dansaði sitt allra besta meðan allir stóðu kjurrir og dáðust að þessu. Ég held samt að hann hafi verið eitthvað þroskaheftur, allavega leit kærastan hans þannig út. Ekki illa meint, en þá gef ég honum séns. Fínn gaur, eflaust.

Annað sem fór í pirrurnar á mér við þetta, var fólkið sem mætir á alla tónleika, nokkrir þarna sem vita eflaust ekkert hvað Sigurrós er. Ég er að tala um eins og í MIÐJU laginu Viðrar vel til loftárása, þá byrjuðu margir að klappa. Lagið ekki nærðum því búið. Alveg eins í nokkrum öðrum lögum, fólk vissi ekkert.

np; "Untitled 8 - ( ) - Sigurrós"

Þetta er lagið sem þeir enduðu á, þvílíka gæsahúðin sem ég fæ í endann. En ég skal hætta núna, ef einhver er að lesa, halló? Tak for mig.

~ fanfab

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 14:27:04 / fannar

3:00pm

Ehm, svo sannarlega mikið búið að gerast bara síðan, í fyrradag.

Það fyrsta sem ég vil tala um er að ég fór í bíó í smáranum í gær, á mynd sem okkur dauðlangaði til að sjá. Ég sá eiginlega svo eftir því að hafa borgað mig inná hana, ekki aþví að hún var léleg, heldur bara því ég var svo dauðhræddur og hélt ég ætti aldrei eftir að sofna þetta kvöld. Ég er að tala um myndina;

Exorcism of Emily Rose



Hér á myndinni sést að hún er að öskra, hún gerði fátt annað í myndinni, ógeðslegt öskur sem bergmálar í litla hjartanu mínu enn í dag. Oj. Það sem gerir þessa mynd samt ógeðslegri er, að þetta er sannsögulegt. Að hugsa sér svona viðbjóð, eftir þessa mynd þá gerðum við srákarnir ekki annað en að hugsa um ljóta hluti og tala um allt sem gerði ástandið okkar bara verra.

Við ákváðum þá að bruna heim, skella okkur á Paddy's og traffic, aðeins til að dreyfa huganum frá þessum viðbjóðslegum hugsunum. Við fórum þangað, fengum það beint í æð að Mr.Splash hafi splassað Hr. Ísland keppnina, eins og stóð í Víkurfréttum... heh..he.

Þarna var fullt af fólki að skemmta sér, og syngjandi Ole lagið í annari útgáfu, eða.. Óli. Svo kemur strákurinn sjálfur, í hvítu jakkafötunum, með Fröken Ísland borðann á öxlunum og allt varð vitlaust.
Þannig nú get ég sagt að ég hafi verið að skemmta mér með Hr. Ísland, eða eitthvað, já.

Að öðru, þá var eitt mesta kvennagull og ein frægasta fótboltastjarna allra tíma að láta lífið núna í nótt. Sá maður hét George Best og var í liði meistaranna, eða Manchester United.



Ég man ég var að lesa grein um þennan mann, og þá sá ég eina tilvitnun í hann. Ég man ekki hvernig þetta hljómaði á ensku en spurningin var; "Hvort myndir þú vilja, sofa hjá Miss World eða skora á móti Liverpool, þrumuskot, 30 m frá markinu, beint uppí samman?" Þá sagði Best sjálfur; "Ég hef gert bæði".
Ah, þetta hljómar kannski ekki eins svalt á íslensku, en mjah, ímyndið ykkur þetta bara. Hann var svalur gæji, en ekki eins og Hr. Splash.

Annað, má ekki gleyma því að ég er að fara á örugglega eftirminnilegustu tónleika sem ég mun sjá, damn mig hlakkar til að sjá þá, enga aðra en Sigurrós. Svo líka um morguninn verður hraðmót í boltanum í höllinni. Liðin ekki af verri endanum, en það verða Keflavík, Njarðvík, Grindavík, FH og Þróttur. Allir að vakna snemma og sjá okkur, ooohokey. Mmbæ.

~ fanfab

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 17:44:58 / fannar

I'm standing here..

Hæmaður, hvað er títt?

Sjeet, skömm að hafa misst af Lenu+Sign. En mér var greinilega ekki ætlað að sjá uppáhalds death rokkarana mína í Sign. Neiplat, ég hlusta ekkert á þá. Langaði samt að sjá Lenu og svoleiðis sjit. En því miður, eða já eitthvað, þá er oof mikið að gera í boltanum víst.

Já, hommapartýið......

Þið hafið mörg ykkar eflaust velt ykkur fyrir því hvernig þetta var, afhverju þetta var og hvað var í gangi. Ég get lofað ykkur að það var ekkert í gangi nema, já það sem þið sáuð á myndunum, sem byrjaði auðvitað með manni þar sem fastur liður hjá honum er að fara úr bolnum á svona tímum. Sá maður kallar sig meistarann, en ég kýs að kalla hann Einar Orra.

Annað, muniði eftir Leoncie?

Fökkin pía. Maður er að fá þær fréttir að hún sé að slá í gegn útí heimi með lögum á borð við Killer in the Park og aðra þrusu hitt-ara. Sjet, sú gella var fine.


Þrususkvísa

Veit ekki afhverju hún yfirgaf okkur, hún sagði að við hefðum verið vond við hana. En ég skil ekkert í því, þessi manneskja átti fullan rétt á því að segjast vera Íslendingur og þykjast vera mesti tónlistarmaður okkar allra tíma, komandi fram eins og algjör fáráður í asnalegum búningum... og já blablabla.

Þarna, já.. gleymdi því næstum, en ég verð víst að óska Helgu Maren til hamingju með daginn, hún hótaði mér öllu illu útaf því ég gleymdi því í skólanum. Neiplat, en til hamingju með öll árin stelpa. ;)

Svo vil ég líka nýta mér tækifærið og óska /bgudlaugsson til hamingju með titilinn sem besta blogsíðan, en hún fékk eitthvað í kringum 30% af 327 atkvæðum. Hugsið ykkur, að það voru 327 manns sem lögðu í það að gefa sitt atkvæði. Og já, fyrir þá sem vita ekki neitt, var þetta 100% kaldhæðni.

~ fanfab

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 00:24:16 / fannar

til ykkar..

Yo hoes(hildur)..

Hvað er títt?.. Ég sé svolítið eftir því að hafa ekki joinað alla töffarana á Það var Lagið með engum öðrum en Hemma Gunn sem fer brátt að falla niður vegna hláturkasts. Það er sko maður sem gæti dáið úr hlátri...fjúhh, ég er í eldi.

Hvað á annars að gera um helgina? Ekki neitt?

Ég hafði allavega planað bara eitthvað FifaStreet mót með strákunum, þeir voru eitthvað að skora á meistarann. Ætli maður geri sér ekki gott kvöld þar og noti svo laugardaginn fyrir skemmtilegheitin.

Einsi manstu eftir þessu?;



Já þetta er gömul og góð mynd af einu lauigardagskvöldi, sem var svo skemmtilegt, en endaði eins leiðinlega og hægt var. Takk fyrir stuðninginn Einsi. Já á laugardaginn erum við allavega staðráðnir í að gera eitthvað gott&gaman þar sem ég var í pásu 2 síðustu helgar, ég nenni ekki meiri pásu, pjúra tímasóun :)

Svo rakst ég líka á nokkrar góðar myndir, af fólki, morguninn eftir;


Sætt..


Garðar E..


Einhver gaur, greyið..

Heyriði, já endilega verið í bandi ef það er eitthvað sem má ekki missa af, þessa helgina. Svo er víst voða keppni í gangi á pretzel síðunni, það eru tilnefningar í gangi fyrir besta bloggarann, ætli maður komi ekki sterkur inn, þið megið allavega gera mér greiða og hjálpa mí out. b.c.is/pretzel. ;)

~ fanfab

» 27 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 01:42:03 / fannar

Fanfab, skrásett vörumerki.

Hahah.. ææj.

Stundum þegar ég hef nákvæmlega ekkert að gera, þá fer ég að skoða fréttir allstaðar úr heiminum, það sem fólk getur verið heimskt, vitlaust, klaufalegt og ég veit ekki hvað og hvað.

Allt er til í þessum heimi, ójá.

Ég var tildæmis að kíkja á nokkrar skemmtilegar fréttir og rakst t.d. á þessa;

Áttræð nunna tekin úr axlarlið og rænd.



Finnst ykkur fyrirsögnin ekki segja allt? Þetta gat ekki verið slys, eða óvart. Þetta var semsagt sú allra saklausasta nunnu-kona á rölti sínu um bæ í Norður-Írlandi þar sem kemur einhver sleði á hlaupum og þrykkir hana í öxlina og rænir greyið konuna, kannski hefur hún lært sjálfsvarnir, en áttræð..snerpan ekki í fyrirrúmi.

Ég veit ekki með ykkur en ég hefði það ekki í mér að negla gamla, varnarlausa nunnu í öxlina og ræna greyið kelluna, aahhh.. :)

Annað, ég var að skoða nokkur heimsmet og sá þá eina frétt, þar sem einhver no-life brainers voru að gera góða hluti og ætluðu sér að slá heimsmetið í röðun dómínókubba. Ég las ekki alveg fréttina en ég sá allavega aðalatriðin, sem voru að einhverjir Hollendingar röðuðu upp 3.992.397 dómínókubbum.
Jáh, og viti menn..þeir ætla sér að slá metið á næsta ári með því að raða upp ekki meiri né minni en 4.321.000 kubbum. Have fun boys.

Á heimasíðu Guinness gat maður líka skoðað ansi skondin heimsmet og ég rakst einmitt á metið;

Most Individuals killed in a terrorist act.

Jæja, þetta er nottla ekkert fyndið, og það er að sjálfsögðu verið að tala um árásina á tvíburaturnana í New York. En það sem fékk mig til að hlægja var, að fyrir þá allra mestu keppnis-gaura þá gat maður farið í;


* Break this record.

Æj ég veit ekki hvernig maður ætti að fara að því? Sprengja upp Old-Trafford í miðjum leik, þá myndi maður ná rúmum 60.000, ekki slæmt met þar á ferð.

Annað sem ég vil benda ykkur á, er að í dag er ENGUM óhætt gagnhvart slúðurkóngunum á /bgudlaugsson, þetta er ekkert grín, sama hvar þið eruð, hvað þið eruð að gera. Þið verðið alltaf að passa ykkur og hvað þið látið laust úr munn ykkar, annars lendið þið allsvaðalega í því.

~ fanfab

» 16 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 15:42:35 / fannar

Lüftgítar, ég dansa ekki..

Eyó..

Ég verð að gefast upp með 80 commentin þarna fyrir neðan, en ég sætti mig tæp 50. Ég er kominn hingað á ný til að tala um hljóðnemaballið ooog já. Var líka að spá í því að koma með eitthvað nýtt á þessa síðu, en ekki eitthvað crappy eins og mánaðarins eða slúður, ef þið hafið einhverjar hugmyndir bjallið í; 866-fret.

En já, ballið. Þetta kvöld var geðveikt í alla staði, við byrjuðum heima hjá Davíð Sveinssyni og það ætlaði að vera rólegt og sötr í 2-3 tíma. En allt kom fyrir ekki, litla 5 fermetra herbergið hans fylltist af litlum strákum í leit að upphitun fyrir ballið. Á stuttum tíma breyttist þetta úr rólegu sötri yfir í brjálað hommapartý..nei, en samt geðveikt gaman, get ekki lýst stemningunni sem var þarna.

Ekki varð sú stemning minni þegar við mættum á ballið, fjúh. Markmið mitt var að eigna dansgólfið, ég held ég hafi náð því einu sinni. Þegar ég var að dansa með Garðbúum, engin samkeppni. Nei segi svona, ég átti mín móment, ójá.



Það er ekkert grín hvað litli snoðhausinn lýtur upp til mín..eins og þið sjáið T.D. á myndinni. Á ballinu fannst mér eitt frekar fyndið. Ég rakst á tvo meðlimi Blackburn_B og þeir voru víst gríðarlega þreyttir, nýkomnir af æfingu. En eins og komið hefur fram í DV fengu þeir ekkert frí eftir Beer-Cup og eru byrjaðir að æfa strax á fullu og ætla sér að REYNA að vinna Strawberrys á næsta tímabili.

Hérna sjáum við tvo af þeim;


Óli Jón, búinn á því.


Hægra megin sjáið þið Þórhall, sofandi..

En jæja, það var þá ekki meira í dag. En ég vil þakka DavíðMár, ljósmyndaranum mínum fyrir lán á þessum myndum, ég spurði ekki, en samkvæmt samning sem við gerðum þá hef ég leyfi til að stela öllum myndum sem við koma mér/strawberrys. Tak for mig.


  ~ fanfab

» 19 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 18:25:23 / fannar

Olei, Olei, Olei, Oleiii.

Já það má segja að Jarðaberin ráði ríkjum í dag.

Þessi dagur er búinn að vera yndislegur í alla staði og hann mun aðeins batna, hljóðneminn og ballið er í kvöld. Ég hef aldrei skemmt mér jafn mikið í skólanum, eða á skólatíma. Þetta var sætasti sigur allra tíma. Frábært lið, við sigldum létt í úrsltakeppnina, og alla leið í úrslitaleikinn, hann var erfiður, en við rétt mörðum hann, og það var FRÁBÆRT.

Við í Strawberry's sigruðum BeerCup 2005, og erum stoltir af því.



Champions

Ég gerði samning við Davíð Már um að hann myndi gerast einkaljósmyndari Strawberry's liðsins, og hann stóð sig með prýði. Ég þakka honum fyrir og skelli hér inn nokkrum myndum;


Vinnie Jones og Thomas Gravesen á góðri stundu..


Parks í sigurvímu meðan Crouch og Gattuso standa stoltir hjá..


Gattuso að pósa, meðan Vinnie lítur niður á hann. Hin jarðaberin fyrir aftan.


Carl Berg Albínói, Alan Smith blökkumaður og Ruddock á góðri stundu..


Uuh.. eitthvað, grindavík..


Frændurnir Crouch og Róbert Þór..


Gríðarspenna meðan vítarspyrnukeppnin stendur yfir..


Crouch skorar af öryggi í annari tilraun eftir svindl hjá Adda FC.



Jæja þá er það komið, þetta var án efa gríðar gaman og þvílíkt sætur sigur. Ég býst við að Jarðaberin komi sterkir inn aftur á næsta ári til að verja titilinn. Nú megiði óska okkur til hamingju með titilinn, brjótið commentametið sem er eitthvað í kringum.. 80? Tja, reynið.. Við eigum það skilið :)

Að öðru, stóri maðurinn er svo heppinn, hann var að fá nýja Deep Jimi and the Zep Creams diskinn í hús. Við fyrstu hlustun lofar hann góðu sko, ætla að gista í honum næstu daga og ber svo fréttir af honum seinna. En ég þakka fyrir mig.

~ fanfab

» 46 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 14:43:33 / fannar

Everything happends for a reason..

 Sæl veriði..

Jæja nú er komið að því að reyna að skrifa þessu færslu í þriðja skiptið, fjúh. Ég hef allavega mikið til að skrifa um núna, þannig endilega náið ykkur í eitthvað nasl og svona ef þið ætlið að lesa þetta til fulls.

Það sem ég ætla að byrja á því að gera er að... af-kitla mig? Ég lenti allavega í því að brjálaða réttdræpa gellan úr njarðvíkunum kitlaði mig.



7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey..
  • Verða merkur maður.
  • Læra á hljóðfæri, ef ekki mörg..
  • Finna einhverja kvenkyns veru til að eyða lífinu með.
  • Klára að lesa Gift í dönsku, svo ég nái...áður en ég dey.
  • Læra latínu, en bara ef ég fæ kunnáttuna gefins, nenni ey að læra.
  • Hætta að kremja hjörtu eins og slátur.. huhu
  • Stoppa "senda til milljón manns annars verðuru aldrei kysstur" kveðjur..
7 hlutir sem ég get ekki gert..
  • Hætt að horfa á Cookie í skólanum..
  • Hætt að stækka.
  • Tekið mig á í matarræði, ég fitna hvort sem er ekkert..
  • Verið flippaður.
  • Vaknað ferskur og tilbúinn í slaginn við daginn.
  • Horft á Tedda án þess að brosa ef ekki hlægja..
  • Lært að elska Darren Fletcher.
7 hlutir sem ég get gert..
  • Gert ekki rassgat lengi, svo lengi sem ég hef mjúsík.
  • Horft á South Park eins og ég fái borgað fyrir það.
  • Lyft 200 kílóum, eitt í einu...
  • Borðað og borðað, engin takmörk..
  • Sparað pening, en ekki eins vel og Garðar E.. eyðir hann?
  • Hangið í tölvunni forever more, alltaf hægt að dunda sér á veraldarvefnum + FM.
  • Verið algjör plebbi.
7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið..
  • Klaufaskapur.
  • Rólegheit.
  • Alls ekki of flippuð.
  • Fegurð.
  • Vit fyrir stíl.
  • Fallegt bros.
  • Heiðarleg.
7 frægir kvenmenn sem heilla mig..
  • Carmen Electra.
  • Angelina Jolie.
  • Jessica Alba.
  • Mamma'ns Einars.
  • Heidi Klum.
  • Halle Berry.
  • Ali Landry.
7 orð sem ég segi oftast..
  • Neplat.
  • Logandi Samkynhneigður.
  • Garðar E.
  • Sjii.
  • Díí.
  • Nauu.
  • Plís í bænum.
7 lítil fórnarlömb..
  • Bjarki eldsdikid
  • BjörnGeir bjorngayr
  • Aníta unknown-
  • DavíðMár bitill-
  • Mummi jiggy-joe
  • Óli Jón flugufrelsarinn
  • Bergþóra boda
Jæja þá er þessu lokið og ég vil óska þeim sem urðu fyrir mínu kitli, góðs gengis. Múhaha.



Næst á dagskrá hér á fanfab er, Beer Cup.

Beer-Cup verður fimmtudaginn 10. nóvember í íþróttahúsinu við sunnubraut kl. 11:00. Þetta er ekkert annað en hrein og bein úrslitakeppni, gríðarsterk. Liðin sem verða þarna eru.. Strawberry's og einhver önnur skítalið. En ég veit ekki alveg hvort Strawberry's eiga eftir að ganga til liðs við skítaliðin þar sem í versta falli verða 3 meiddir hjá Jarðaberunum, þeir Vinnie Jones, Parks og Peter Crouch.
Ég held samt að Peter Crouch sé að ná sér af sínum meiðslum og mun hann koma væntanlega sterkur inn með sína þrumufleiga strax á fimmtudaginn.

Strawberry's hafa líka gert sér lítið fyrir og keypt sér liðsstyrk. Sá maður varð tilnefndur strax í fyrsta leik til Maður Mótsins. Hann er þekktur fyrir sínar hælspyrnur og síðast en ekki síst markaregnin. Þessi strákur hefur fengið viðurnefnið C. Ronaldo hér og nú.

Þar sem fyrirliði Strawberry's er veikur heima í dag, þurfti Vinnie Jones að leysa hann af á sérstökum Beer-Cup fundi sem haldinn var í FS í dag. Hann kom til mín fyrr í dag og sagði mér allt sem gerðist á þessum fundi. Hann byrjaði að segja.. "úff, það var rafmagnað loft þarna".  Þetta gerir keppnina enn skemmtilegri. En svo voru ákveðnar reglur ákveðnar á fundinum.

Þær hljóma svona;
  • Engar reglur.
  • Engir kennarar.
Það er ekki hægt að hafa þetta einfaldara, og þess vegna mun þetta mót blómstra. En ég hvet ykkur öll til að mæta í íþróttahúsið á morgun, kl 11:00 og styðja besta liðið.

Ykkar, Peter Crouch (c).



Nóg af Crouchernum, ég verð að segja ykkur frá einni mynd sem ég horfi títt á. Sú mynd heitir The United States of Leland. Þetta er ein besta Drama mynd sem ég hef séð, svo full af skilaboðum og alls kyns stöffi sem fær mann til að hugsa.



"I'm only human.."
"It's funny how people only say that when they have done something wrong.
But they don't when they have saved a kid from a burning building."

"I think there are two ways you can see the world.
You either see the sadness that's behind everything or
you choose to keep it all out."

Ef þið hafið ekki séð hana, then get to it, þið munuð ekki sjá eftir því. En ég segi þetta gott í dag, það yrði fínt að fá comment frá ykkur duglegu lesendum.


~ fanfab

» 39 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5